Persónuverndarstefna MarkMynt

Síðast uppfært: 9. september 2026

MarkMynt leggur áherslu á einfaldleika og persónuvernd. Þessi persónuverndarstefna útskýrir hvernig upplýsingar eru meðhöndlaðar þegar þú notar MarkMynt.

Upplýsingar sem notandi skráir

Í MarkMynt getur notandi meðal annars skráð upplýsingar um tekjur, afborganir lána, regluleg útgjöld og aðrar upplýsingar sem tengjast heimilisfjármálum.

Þessar upplýsingar eru geymdar staðbundið á tæki notandans eða í vafranum sem MarkMynt er notað í.

MarkMynt safnar ekki fjárhagsupplýsingum þínum

MarkMynt tengist ekki bankareikningum og sækir ekki upplýsingar sjálfkrafa frá bönkum eða öðrum fjármálafyrirtækjum.

Upplýsingar sem notandi skráir inn í MarkMynt eru ekki sendar til MarkMynt og eru ekki geymdar á miðlægum gagnagrunni MarkMynt.

Geymsla upplýsinga

Upplýsingar eru geymdar staðbundið á tæki notandans. Ef notandi eyðir gögnum appsins, hreinsar vafragögn eða fjarlægir appið geta upplýsingar sem hafa verið vistaðar staðbundið glatast.

Miðlun upplýsinga

MarkMynt selur ekki, miðlar ekki og afhendir ekki fjárhagsupplýsingar notenda til þriðju aðila.

Öryggi

Þar sem upplýsingar notandans eru geymdar staðbundið ber notandi einnig ábyrgð á öryggi eigin tækis, svo sem með skjálæsingu, lykilorði eða öðrum öryggisráðstöfunum.

Breytingar á persónuverndarstefnu

Persónuverndarstefnan kann að breytast ef virkni MarkMynt breytist eða nýir eiginleikar eru teknir í notkun. Nýjasta útgáfan verður ávallt aðgengileg á þessari síðu.

Hafa samband

Ef þú hefur spurningar varðandi persónuvernd eða meðferð upplýsinga hjá MarkMynt geturðu haft samband í tölvupósti:

markmynt@markmynt.is